Skráningar fyrir Svellkaldar konur hefjast í hádeginu í dag

10. mars 2015

 

Skráningar fyrir Svellkaldar konur hefjast í hádeginu í dag inni áwww.sportfengur.com og skraning.sportfengur.com.

Aðeins 100 konur komast að svo um að gera að vera tilbúin við tölvuna. Þátttökugjaldið er kr. 10.000 og er skráningin ekki tekin gild fyrr en greiðsla liggur fyrir. Allur ágóði af mótinu rennur til styrktar landsliðinu okkar sem keppir á HM í Herning í sumar.

Svellkaldar konur er flottur viðburður sem haldin verður í Skautahöllinni í Laugardal, laugardaginn 21. mars. Aðgangseyri verða litlar 1000 krónur, frítt fyrir 12 ára og yngri.


Hvetjum við alla til að mæta og styrkja gott málefni!