Skráning í dag

13. febrúar 2012
Fréttir
Bleika töltmótið verður haldið í Reiðhöllinni í Víðidal á konudaginn þann 19. febrúar næstkomandi. Bleika töltmótið verður haldið í Reiðhöllinni í Víðidal á konudaginn þann 19. febrúar næstkomandi. Mótið er einungis ætlað konum 17 ára og eldri og hefst kl 12:30. Skráningagjöld eru frjálst framlag og renna óskert til Krabbameinsfélags Íslands til styrktar rannsóknum á brjóstakrabbameini en þó að lágmarki 3.000 kr.

Bleika slaufan er alþjóðlegt tákn í baráttunni gegn brjóstakrabbameini. Við hvetjum því knapa og áhorfendur að klæðast bleiku í tilefni dagsins og sýna samstöðu.

Skráningu skal senda á netfangið ddan@internet.is 13. febrúar frá 18-22 þar sem fram kemur IS númer hests, keppnisflokkur, kennitala knapa og símanúmer og upp á hvora hönd er riðið. Einnig er tekið á móti skráningu í gegnum síma, 894-3980 Auður, 893-3559 Drífa, 660-1750 Laufey og 863-4252 Jóhanna.