Skráning á úrtökumót fyrir HM09

10. júní 2009
Fréttir
Liðstjórar og heimsmeistarar íslenska landsliðsins 2007
Úrtakan vegna HM 2009 fer fram dagana 16. júní (fyrri hluti) og 18. júní (seinni hluti) á félagssvæði Fáks, Víðidal. Skráning er á skrifstofu LH til kl.16:00 föstudagsinn 12.júní. Úrtakan vegna HM 2009 fer fram dagana 16. júní (fyrri hluti) og 18. júní (seinni hluti) á félagssvæði Fáks, Víðidal. Skráning er á skrifstofu LH til kl.16:00 föstudagsinn 12.júní.

Skráningagjöld eru kr. 8.000,- á hverja grein og greiðast við skráningu.

Greinar eru eftirfarandi:

Tölt-T1
Tölt 2-T2
Fimmgangur-F1
Fjórgangur- V1
Gæðingaskeið- PP1
100m skeið- P1

Upplýsingar og skráning: Skrifstofa LH, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, s: 514 4030.

Landsliðsnefnd LH hefur sent frá sér nýjan lykil að vali landsliðsins. Smávægilegar breytingar hafa verið gerðar á lyklinum. Tíu keppendur eru valdir í landsliðið að venju, sjö fullorðnir og þrjú ungmenni. Auk þess hafa fjórir gullverðlaunahafar frá HM2007 þátttökurétt: Þórarinn Eymundsson, Beggi Eggertsson, Jóhann Skúlason og Sigursteinn Sumarliðason. Þrír keppendur verða í liði ungmenna.

Fimm keppendur í lið fullorðinna veljast á úrtöku. Efstu keppendur í tölti, fjórgangi og fimmgangi öðlast rétt. Keppendur í T2, 100 m skeiði og gæðingaskeiði þurfa að ná ákveðnum lágmörkum á úrtökumóti til að öðlast keppnisrétt. Að öðrum kosti velur landsliðseinvaldur þá keppendur. Tvö ungmenni veljast eftir lykli en þriðja keppanda í lið ungmenna velur einvaldur.

Ekki verður keppt í 250m skeiði á úrtökumótinu. Árangur í keppni á árinu gildir svo fremi að lágmarkstímar náist á löglegu móti. Sjá nánar í lykli.

LYKILL AÐ VALI ÍSLENSKA LANDSLIÐSINS á HM 2009.
 
Fullorðnir og ungmenni:
1. Knapi/hestur:  Stigahæsti 5-gangari í úrtöku, að meðaltali út úr báðum umferðum

2. Knapi/hestur:  Stigahæsti 4-gangari í úrtöku, að meðaltali út úr báðum umferðum

3. Knapi/hestur:  Stigahæstu töltari (T1) í úrtöku, að meðaltali út úr báðum umferðum

4. Knapi/hestur:  
a) Knapi/hestur (parið) ef hann nær 7.77 eða hærri einkunn í T2 í úrtöku,  að meðaltali úr báðum umferðum.
b) Knapi/hestur (parið) sem nær 8.25 eða hærri einkunn í gæðingaskeiði PP1 í  úrtöku, að meðaltali úr báðum umferðum.
c) Knapi/hestur (parið) sem nær 7.50 sek eða 7.70. eða betri tíma úr tveimur  umferðum í 100m skeiði. 4 sprettir tveir bestu sprettir gilda úr báðum umferðum. Ef fleiri en einn hestur nær lágmarkinu þá skal sá veljast sem betri árangri nær miðað við þau lámörk sem sett eru.

Lagt  er að jöfnu.
Einkunn . 7,77 í slaktaumatölti T2,
Einkunn.  8,25 í gæðingaskeiði PP1
Tími .     7,50 í 100m skeiði     P2

5. Knapi/hestur:  sem nær 22,30 sek eða betri tíma einu sinni á móti og 22,80 eða betri tíma í öðrum spretti sem þarf ekki að vera á sama móti. Árangurinn þarf að nást við löglegar aðstæður úr rásbásum með rafrænni tímatöku. Skal miða við að árangur náist í síðasta lagi á Íslandsmóti fullorðinna 2009.

Ef hestur 4 og 5 nást ekki eftir uppgefnum lágmörkum, verða þeir báðir valdir af  einvaldi.
 
6. Knapi/hestur:  Einvaldur velur.
7. Knapi/hestur:  Einvaldur velur.
8. Knapi/hestur:  Það ungmenni sem nær hæstu einkunn í T1,V1 eða F1 í úrtöku.
9. Knapi/hestur:  Það ungmenni sem nær hæstu einkunn í T1, V1, F1, T2, PP1, P2(100m)  þó ekki í sömu grein og keppandi 8 sem kemst í liðið í gegnum úrtöku.  Miða  skal við stigatöflu í FIPO sem segir til um styrk greina.
10. Knapi/hestur:  Ungmenni, einvaldur velur keppanda sem tekið  hefur þátt í móti á Íslandi í hvaða grein sem er á þeim mótum sem fara fram þar til að lokaskráning fer fram. Liðstjóri skal einnig hafa í huga þá knapa sem hafa verið valdir í úrvalshóp LH.U21.

Keppendur 1-7 fullorðnir.
Keppendur 8 – 10 eru ungmenni.
 
Reiknað er meðaltal greina úr báðum hlutum úrtökunnar hjá knapa 1-2-3-8 og 9 og ræður það um sæti knapa/hests (pars).

Um knapa/hest (par) 4-5 gilda ofantalin lágmörk en aðrir eru liðstjóravaldir.


Keppnisgreinar í úrtöku verða T1, T2, V1, F1, PP1,P2.
Keppni í öðrum skeiðgreinum fer fram á mótum fram að skráningu(síðasta lagi íslandsmót fullorðna 2009) við löglegar aðstæður.
Sprettir í 100m og 250m skeiði skal miða við löglegar aðstæður og rafræna tímatöku.

Liðstjóri/einvaldur fylgist með ástandi og framþróun liðsins frá úrtöku og fram að  keppni á HM. Þeir keppendur sem hafa titil að verja falla einnig undir þennan lið.

Liðstjóri hefur full völd á hverjum tíma til að gera breytingar á liðinu, hvort sem um er að ræða knapa/hest  (par) sem valið hefur verið í úrtöku, knapa/hest (par) heimsmeistara frá s.l. móti eða liðstjóravalda knapa/hest (par).  Ríkjandi heimsmeistarar skulu tilkynna keppnishesta sína fyrir maí lok 2009 til landsliðseinvalds.