Skráning á Reykjavíkurmeistaramót

25. apríl 2018
Fréttir

 

Reykjavíkurmeistaramót Fáks fer fram dagana 8. - 13. maí í Víðidalnum. Skráning á mótið hefst þann 25. apríl fyrir Fáksfélaga og 27. apríl fyrir aðra keppendur. Skránigarfresti lýkur á miðnætti 28. apríl og verður ekki tekið við skráningum eftir það. Ekki verður tekið við skráningum sem berast með tölvupósti, allar skráningar skulu fara fram í gegnum Sportfeng.

Athugið breytt fyrirkomulag á Reykjavíkurmeistaramóti í ár. Vegna gríðarlegs fjölda skráninga undanfarin ár hefur verið ákveðið að takamarka skráningafjölda í
hringvallargreinum að tölti T1 undanskildu. Skráning verður einnig ótakmörkuð í skeiðgreinum. Ástæðan fyrir því að tölt T1 og skeiðgreinar eru undanskildar er sú að í ár er Landsmótsár og eru þátttakendur að sækjast eftir því að ná inn á stöðulista í þessum greinum. Athugið að ungmennaflokkur mun keppa einn inn á í einu sbr. T1, V1, F1 og T2.

Hámarksfjöldi þáttakenda í hringvallagreinum nema Tölt T1 Meistaraflokkur er eftirfarandi:

  • Tölt T1 Meistaraflokkur ótakmarkað
  • Tölt T2 Meistaraflokkur 10
  • Tölt T4 1. Flokkur 10
  • Tölt T2 Ungmennaflokkur 10
  • Tölt T4 Unglingaflokkur 10
  • Tölt T3 1. Flokkur 20
  • Tölt T3 2. Flokkur 20
  • Tölt T1 Ungmennaflokkur 20
  • Tölt T3 Unglingaflokkur 25
  • Tölt T3 Barnaflokkur 20
  • Tölt T7 Opinn flokkur 10
  • Tölt T7 Unglingaflokkur 10
  • Tölt T7 Barnaflokkur 10
  • Fjórgangur V1 Meistarafl. 25
  • Fjórgangur V2 1. Flokkur 20
  • Fjórgangur V2 2. Flokkur 20
  • Fjórgangur V1 Ungmennafl 25
  • Fjórgangur V2 Unglingafl. 25
  • Fjórgangur V2 Barnaflokkur 25
  • Fimmgangur F1 Meistarafl. 25
  • Fimmgangur F2 1. Flokkur 15
  • Fimmgangur F2 2.flokkur 15
  • Fimmgangur F1 Ungmennafl 15
  • Fimmgangur Unglingafl 15

Skeiðgreinar sem boðið verður uppá eru:

  • Skeið 250 m Opinn flokkur
  • Skeið 150 m Opinn flokkur
  • Gæðingaskeið Meistaraflokkur
  • Gæðingaskeið Opinn flokkur
  • Gæðingaskeið Ungmennaflokkur
  • Gæðingaskeið Unglingaflokkur
  • Flugskeið 100 m

Skráningargjöld verða þau sömu og 2017:

  • Meistara- og ungmennaflokkur = kr. 6.500 (nema gæðingaskeið kr. 6.000.)
  • 1. flokkur, 2. flokkur = kr. 6.000.
  • Unglinga- og barnaflokkur = kr. 4.500.
  • Kappreiðaskeið = kr. 4.500.

Hér er nýjasta útgáfan af lögum og reglum LH og FEIF, Keppendur eru ábyrgir fyrir því að kynna sér
þær.

Mótanefnd Fáks