Skráning á kynningarfund landsliðsnefndar á morgun

19. maí 2015

Landsliðsnefnd LH boðar til kynningarfundar á miðvikudaginn 20. maí kl. 18:00 í húsnæði Ásbjörns Ólafssonar ehf., Köllunarklettsvegi 6, Reykjavík, þar sem „Lykillinn að vali landsliðsins“ fyrir HM 2015 í Herning verður kynntur. Einnig verður farið yfir knapayfirlýsinguna, sem er með breyttu sniði og er mun nákvæmari en fyrri ár.

Að auki verður skrifað undir glæsilegan samstarfs- og styrktarsamning við Ásbjörn Ólafsson ehf.

Boðið verður upp á léttar veitingar og viljum við biðla til fjölmiðla og annarra að tilkynni komu sína sem allra fyrst á johanna@landsmot.is

Með bestu kveðjum, 
Landsliðsnefnd LH