Skráðu þig á póstlista VITA

01. febrúar 2018
Fréttir

Nýlega  var gerður samstarfsamningur milli Ferðaskrifstofunnar Vita og Landsambands hestamannafélaga. Meðal annars verður samvinna aðila um ferðir á HM í Berlín 2019. Eins og áður verður leitast við að skapa gott andrúmsloft meðal Íslendinga á mótinu. Ekki síst með það í huga er búið að skoða og velja hótel sem aðilar telja henta þeim sem ætla á mótið.  Gott hótel sem væri vel staðsett gagnvart mótinu og gerði mönnum kleift að njóta þess sem Berlín hefur upp á bjóða í leiðinni. 

Svo er gott til þess að hugsa að hver sem bókar sig hjá Vita styrkir landslið Íslands í hestaíþróttum með beinum hætti í leiðinni og styður þannig við hestaíþróttina á Íslandi.

Vita verður með glæsilegar pakkaferðir á mótið.  Skráðu þig á netfangalistann og fáðu upplýsingar um ferðir beint í æð!