Skógarhólar - nýir staðarhaldarar

21. júní 2013
Fréttir
Skógarhólar hafa um árabil verið einn vinsælasti áfangastaður hestamanna á reiðleiðum um Þingvelli og góð gistiaðstaða er fyrir fólk og hross á svæðinu.

Skógarhólar hafa um árabil verið einn vinsælasti áfangastaður hestamanna á reiðleiðum um Þingvelli og góð gistiaðstaða er fyrir fólk og hross á svæðinu.

Íslenski Hesturinn – þau Begga Rist og Sveinn Atli hafa tekið að sér stöðu staðarhaldara á Skógarhólum frá og með 18. júní 2013. Til að panta pláss fyrir hross í beit, fyrir gesti í gistingu og/eða tjaldstæði, vinsamlega hringið í síma 857 5179 varðandi upplýsingar og pantanir.

Það er sannarlega gaman að njóta náttúrunnar í þjóðgarðinum á Þingvöllum, enda hefur hesturinn verið hluti af sögu staðarins í aldaraðir. Á vef þjóðgarðsins má finna upplýsingar um reiðleiðir í garðinum með því að smella á myndina hér fyrir neðan: