Skógarhólar í sumar

23. febrúar 2017
Fréttir

Að venju mun LH halda utan um reksturinn á Skógarhólum á Þingvöllum. Skógarhólar eru frábær áningarstaður fyrir hestamenn og aðra hópa á frábærum stað í miðjum þjóðgarðinum. 

Verið er að hanna bókunarkerfi fyrir staðinn en á meðan er tekið við pöntunum á skrifstofu LH í síma 514 4030 eða í gegnum netfangið lh@lhhestar.is. 

Hér eru nánari upplýsingar um staðinn og hér er Facebook síða Skógarhóla.