Skeiðmót á sunnudag

31. mars 2011
Fréttir
Þá styttist í næsta mót Meistaradeildar í hestaíþróttum sem er Skeiðmótið. En það verður haldið í Sörla, Hafnarfirði, á sunnudaginn klukkan 14:00. Þá styttist í næsta mót Meistaradeildar í hestaíþróttum sem er Skeiðmótið. En það verður haldið í Sörla, Hafnarfirði, á sunnudaginn klukkan 14:00.

Gera má ráð fyrir harðri keppni því enn eru 48 stig í pottinum fyrir sigur í einstaklingskeppninni og allt getur gerst. Í fyrra sigraði Sigurður Sigurðarson, Lýsi, gæðingaskeiðið á Freyði frá Hafsteinsstöðum og má gera ráð fyrir að þeir félagar mæti sterkir til leiks í ár. Sigurbjörn Bárðarson, Lýsi, sigraði 150m skeiðið í fyrra á Óðni frá Búðardal og munu þeir félagar mæta sterkir til leiks í ár.

Knapar eru að byrja að skila inn upplýsingum um hrossin og verða ráslistar birtir á morgun.