Skeiðleikar - skráning í kvöld

08. júní 2009
Fréttir
Miðvikudaginn 10. júní verða aðrir Skeiðleikar af fjórum sem Skeiðfélagið og stendur fyrir í ár. Verða þeir haldnir að Brávöllum, félagssvæði Sleipnis á Selfossi og hefst keppni klukkan 20:00. Keppt verður í 100m, 150m og 250m skeiði. Við skráningu þarf að gefa upp kennitölu knapa og ISnúmer hests. Miðvikudaginn 10. júní verða aðrir Skeiðleikar af fjórum sem Skeiðfélagið og stendur fyrir í ár. Verða þeir haldnir að Brávöllum, félagssvæði Sleipnis á Selfossi og hefst keppni klukkan 20:00. Keppt verður í 100m, 150m og 250m skeiði. Við skráningu þarf að gefa upp kennitölu knapa og ISnúmer hests.


Tekið verður við skráningum í kvöld 8. júní klukkan 19:00 - 21:00 í símum 664 8001 (Ragga) og 897 5439 (Maríanna). Einnig er hægt að skrá í gegnum tölvupóst prinsinn@toyotaselfossi.is og marianna@arbae.is. Skráningargjald er krónur 2.500,- á skráningu.


Greiðsla á skráningargjöldum skal hafa farið fram fyrir klukkan 12:00 miðvikudaginn 10. júní. Leggja skal skráningargjöld inn á reikning 0586-14-603238 kt. 620606-0140. Hægt er að láta senda greiðslukvittun á ofangreind netföng sé greitt í gegnum heimabanka. Í þeim tilvikum þegar greiðandi er annar en keppandi skal tilgreina kennitölu keppanda í tilvísun kvittunar. Greiðslukvittun er eina gilda sönnun þess að greiðsla hafi farið fram.