Síðsumarsýning Gaddstaðaflötum

03. ágúst 2010
Fréttir
Síðsumarsýning kynbótahrossa  verður á Gaddstaðaflötum við Hellu dagana 9. til 20. ágúst. Síðsumarsýning kynbótahrossa  verður á Gaddstaðaflötum við Hellu dagana 9. til 20. ágúst.

Ef ekki mætir sá fjöldi sem reiknað er með verður dögunum fækkað. Tekið verður við skráningum 3. og 4. ágúst í síma 480-1800. Einnig er hægt að skrá hross til sýningar á heimasíðu Búnaðarsambandsins, http://www.bssl.is/. Ganga verður frá greiðslu eigi síðar en miðvikudaginn 4. ágúst hafi greiðsla ekki borist á tilsettum tíma er hrossið ekki skráð til sýningar. Sýningargjaldið er hægt að greiða inn á reikning 0152-26-1618, kt. 490169-6609. Sýningargjaldið er 14.500 kr. fyrir fullnaðardóm en 10.000 kr. ef hrossið mætir einungis í byggingar- eða hæfileikadóm. Greiðslur þarf að merkja með númeri og nafni hrossa. Ef greitt er í gegnum netbanka vinsamlegast sendið greiðslukvittun á netfangið helga@bssl.is. Endurgreiðslur koma því aðeins til greina að látið sé vita um forföll áður en sýning hefst. Ef hross forfallast eftir að sýningin er hafinn verður að framvísa læknisvottorði til að fá endurgreitt.

Rétt er að taka það fram að samkvæmt samþykkt fagráðs í hrossarækt verður gerð tilraun með breytt sýningarform á þessari sýningu, þ.e.a.s. dómar munu að hluta til fara fram á hringvelli. Varðandi reglur um kynbótasýningar er þann fróðleik að finna á heimasíðu Búnaðarsambandsins http://www.bssl.is/ .  Þar verður hollaröðun birt föstudaginn 6. ágúst.

 

Búnaðarsamband Suðurlands