Síðasti dagur umsóknarfrests fyrir Meistaradeildina.

02. júní 2015
Fréttir

Meistaradeild í hestaíþróttum vill minna á að umsóknarfrestur til að sækja um þátttöku fyrir ný lið í deildinni lýkur í dag, 2. júní.

Áhugasömum er bent á að senda tölvupóst á info@meistaradeild.is. Umspil verður haldið að kvöldi 18. júní nk. þar sem þrír knapar frá nýju liði og neðsta liði deildarinnar 2015 keppa í fjórgang, fimmgang og tölti. Keppendur verða að hafa aðgang að þeim hestum sem þeir koma með í umspilið á komandi keppnistímabili.

Fyrir hönd Meistaradeildar í hestaíþróttum
Hulda Finns