Samskip og samtök hestamanna innsigla víðtækt samstarf til ársloka 2013

22. júní 2011
Fréttir
Ásbjörn Gíslason forstjóri Samskipa og Haraldur Þórarinsson formaður LH og LM.
Landssamband hestamannafélaga, Landsmót hestamanna ehf. og Samskip hf. hafa undirritað víðtækan samstarfs- og styrktarsamning. Landssamband hestamannafélaga, Landsmót hestamanna ehf. og Samskip hf. hafa undirritað víðtækan samstarfs- og styrktarsamning.

Samningurinn tekur til nokkurra af helstu viðburðum hestamennsku og hestaíþrótta til loka árs 2013, þar á meðal landsmóta, Íslandsmóta og bæði heimsmeistaramóts og Norðurlandamóts íslenskra hesta.
Stuðningur Samskipa er með margvíslegum hætti, svo sem flutningar og flutningatengd þjónusta, verðlaunagripir, tæki og búnaður.

Haraldur Þórarinsson, stjórnarformaður Landssambands hestamannafélaga og Landsmóts hestamanna ehf., og Ásbjörn Gíslason, forstjóri Samskipa, undirrituðu samstarfssamninginn.

Haraldur segir að stuðningur Samskipa sé afar mikilvægur og hafi þau áhrif að auðveldara verði að halda niðri kostnaði við mótshald og útgerð landsliða, sem ella myndi lenda á hestamönnum og mótsgestum að greiða í formi hærri aðgangseyris og þátttökugjalda.

Ásbjörn segir að Samskip horfi meðal annars til þess að íslenski hesturinn beri hróður lands og þjóðar víða um veröld og höfði til fjölda fólks á öllum aldri. Það sjáist best á því að um 11.500 manns manns stundi hestamennsku á Íslandi og um 60.000 manns innan alþjóðasamtaka íslenska hestsins í 19 þjóðlöndum og þremur heimsálfum. Hestamót hérlendis og erlendis séu fjöldasamkomur sem dragi sífellt að sér meiri athygli fólks, langt út fyrir raðir sjálfra iðkendanna. Samskip vilji leggja samtökum hestmanna lið og styrkja enn frekar öfluga starfsemi þeirra í þágu iðkenda hestaíþrótta og allra aðdáenda íslenska hestsins nær og fjær.

• Hestaíþróttaviðburðir sem samningurinn tekur til:
Landsmót hestamanna á Vindheimamelum í Skagafirði 2011 og í Reykjavík 2012, Íslandsmót fullorðinna á Selfossi 2011, Íslandsmót barna- og unglinga í Keflavík 2011, Íslandsmót fullorðinna á Vindheimamelum 2012, Íslandsmót barna- og unglinga á Hellu 2012, Hestadagar í Reykjavík 2012, ístölt landsliðsins í Skautahöllinni í Reykjavík,  heimsmeistaramótið í Austurríki 2012 og Norðurlandamótið 2013.