Reiðnámskeið með Ísólfi Líndal

16. nóvember 2011
Fréttir
Fyrirhugað er námskeið með Ísólfi Líndal Þórissyni reiðkennara helgina 26-27. nóv á nýja Gustsvæðinu í reiðhöllinni að Hamraenda 16-18. Fyrirhugað er námskeið með Ísólfi Líndal Þórissyni reiðkennara helgina 26-27. nóv á nýja Gustsvæðinu í reiðhöllinni að Hamraenda 16-18.
Hver þátttakandi fær einkatíma á laugardag en á sunnudag verður tveimur kennt í einu.

Nú þegar hefur verið opnað fyrir skráningu á gustarar.is og ganga verður frá greiðslu til að skráning sé tekin gild. Verð á námskeiði er 20.000 kr.

Athugið að aðeins er pláss fyrir10-12 þátttakendur.

Ísólfur Líndal Þórisson hefur haft tamningar og þjálfun að atvinnu frá 15 ára aldri. Hann hlaut Morgunblaðsskeifuna á Hvanneyri árið 1998 og hann er reiðkennari frá Hólaskóla 2005 þar sem hann hlaut LH-hestinn fyrir hæstu meðaleinkunn í reiðkennslu. Ísólfur kenndi við Háskólann á Hólum frá 2007-2010 en hefur nú flutt aftur heim á Lækjamót til að sinna þjálfun, tamningum og reiðkennslu. Ísólfur hefur átt velgengni að fagna á keppnis- og kynbótabrautinni og heldur reglulega reiðnámskeið víða í Evrópu og í Bandaríkjunum.