Reiðmaðurinn - LBHÍ

27. maí 2010
Fréttir
Reiðmaðurinn, er tveggja ára nám í gegnum Endurmenntun Landbúnaðarháskóla Íslands, sem tekið verður inn í þriðja sinn í haust. Námið verður boðið fram, m.a. á Flúðum, Iðavöllum á Héraði og á höfuðborgarsvæðinu. Kennt er ca. einu sinni í mánuði frá föstudegi til sunnudags, september til apríl bæði árin. Auk þess fær fólk bóklega kennslu í gegnum fjarnám og staka fyrirlestra. Reiðmaðurinn, er tveggja ára nám í gegnum Endurmenntun Landbúnaðarháskóla Íslands, sem tekið verður inn í þriðja sinn í haust. Námið verður boðið fram, m.a. á Flúðum, Iðavöllum á Héraði og á höfuðborgarsvæðinu. Kennt er ca. einu sinni í mánuði frá föstudegi til sunnudags, september til apríl bæði árin. Auk þess fær fólk bóklega kennslu í gegnum fjarnám og staka fyrirlestra. Nánari upplýsingar um námið, verð, kröfur og umsóknareyðublað má finna á meðfylgjandi vefslóð:

http://www.lbhi.is/namvidlbhi/endurmenntun/reidmadurinn

Helstu kröfur eru að viðkomandi sé orðin 16 ára, hafi áhuga á hrossum og aðgang að vel þjálfuðum og gangsömum hestum.
Einnig þarf að gera ráð fyrir að hafa hross á húsi allan námstímann og vinna vel í þjálfun hrossins milli tíma samhliða að lesa fræðin heima.

Hafið svo samband ef eitthvað er annars bíðum við spennt eftir að fá bréf í pósti, en umsóknafrestur rennur út 6. ágúst ;-)

P.s. fjallað hefur verið um Reiðmanninn í Tímaritinu Eiðfaxa og m.a. talað við nemendur sem útskrifuðust úr náminu í vor frá Hestamiðstöð LbhÍ á Miðfossum. Nemandahópar eru nú með haustinu að hefja sitt annað ár í Rangárhöllinni við Hellu og Hestamiðstöðinni Dal í Dallandi í Mosfellssveit.