Reiðkennari óskast hjá Létti

03. september 2012
Fréttir
Hestamannafélagið Léttir á Akureyri, óskar eftir að ráða reiðkennara fyrir starfsárið 2012-2013.

Hestamannafélagið Léttir á Akureyri, óskar eftir að ráða reiðkennara fyrir starfsárið 2012-2013.

Um er að ræða kennslu í knapamerkjum 1-5, almenn reiðnámskeið fyrir alla aldurshópa ásamt hugmyndavinnu, aðstoð við sýningar og annað tilfallandi. Bókleg kennsla í knapamerkjum er kennd fyrir áramót.

Á Akureyri er ein stærsta reiðhöll landsins og öll aðstaða til kennslu er frábær.

 

Umsækjendur sendi póst á stjorn@lettir.is með öllum upplýsingum fyrir 20. september.

 

Stjórn Léttis