Ráslistar í fimmgangi

29. mars 2012
Fréttir
Á morgun föstudag fer fram lokamót Meistaradeildar í hestaíþróttum en þá verður keppt í fimmgangi. Nú hafa allir keppendur skilað inn upplýsingum um þau hross er þeir keppa á og mega áhorfendur eiga von á veislu á morgun. Á morgun föstudag fer fram lokamót Meistaradeildar í hestaíþróttum en þá verður keppt í fimmgangi. Nú hafa allir keppendur skilað inn upplýsingum um þau hross er þeir keppa á og mega áhorfendur eiga von á veislu á morgun.

Keppnin hefst klukkan 19:00 en húsið sjálft opnar klukkan 17:00. Kveikt verður upp í grillinu rétt fyrir fimm og geta áhorfendur brunað beint í Ölfushöllina eftir vinnu og fengið sér gómsætt lambakjöt eða kjúkling af grillinu fyrir aðeins 1.500 krónur. Fyrir þá sem vilja verður einnig tilboð á einum köldum eða réttara sagt tveir fyrir einn á 500 krónur á milli 17 og 19. Eins og í vetur verður einnig boðið upp á pizzur.

Trúbador verður á staðnum þegar móti lýkur og heldur hann uppi stemmingu frá 23 - 02:00.

Meistaradeildin verður einnig með happdrætti og kostar miðinn aðeins 1.000 krónur og eru vinningarnir ekki af lakari endanum en það eru folatollar undir Kork frá Korpu, Leikni frá Vakurstöðum, Leonard frá Vakurstöðum, Aronssonur sammæðra Leikni, Mátt frá Leirubakka, Storm frá Leirulæk og Tón frá Melkoti.

Forsala aðgöngumiða fyrir mótið er í fullum gangi í verslunum Top Reiter, Líflands og Baldvini og Þorvaldi á Selfossi og er aðgangseyrir 1.500 krónur. Það eru um að gera að tryggja sér miða í forsölu.

Hart verður barist í stigakeppninni bæði einstaklinga- og liðakeppninni.
En fjórir knapar eiga möguleika á sigri í deildinni og má gera ráð fyrir að þeir berjist fram á síðustu stundu.

Hér að neðan eru ráslistar morgundagsins:

Nr    Knapar    Lið    Hestur
1    Teitur Árnason    Árbakki / Norður-Götur    Þulur frá Hólum
2    Þorvaldur Árni Þorvaldsson    Top Reiter / Ármót    Gjafar frá Hvoli
3    Þórdís Erla Gunnarsdóttir    Auðsholtshjáleiga    Hreggviður frá
Auðsholtshjáleigu
4    Sigurður Sigurðarson    Lýsi    Svalur frá Blönduhlíð
5    Guðmundur Björgvinsson    Top Reiter / Ármót    Gammur frá Þúfu
6    Hinrik Bragason    Árbakki / Norður-Götur    Seifur frá Prestsbakka
7    John Kristinn Sigurjónsson    Hrímnir    Konsert frá Korpu
8    Lena Zielinski    Auðsholtshjáleiga    Patrik frá Reykjavík
9    Eyjólfur Þorsteinsson    Lýsi    Kraftur frá Efri-Þverá
10    Ólafur Ásgeirsson    Spónn.is    Heimur frá Votmúla
11    Sara Ástþórsdóttir    Ganghestar / Málning    Völur frá Árbæ
12    Sigursteinn Sumarliðason    Spónn.is    Geisli frá Svanavatni
13    Hulda Gústafsdóttir    Árbakki / Norður-Götur    Tryggur frá Bakkakoti
14    Artemisia Bertus    Hrímnir    Sólbjartur frá Flekkudal
15    Sigurður Vignir Matthíasson    Ganghestar / Málning    Máttur frá Leirubakka
16    Elvar Þormarsson    Spónn.is    Skuggi frá Strandarhjáleigu
17    Sigurbjörn Bárðarson    Lýsi    Stakkur frá Halldórsstöðum
18    Viðar Ingólfsson    Hrímnir    Már frá Feti
19    Jakob Svavar Sigurðsson    Top Reiter / Ármót    Alur frá Lundum
20    Valdimar Bergstað    Ganghestar / Málning    Týr frá Litla-Dal
21    Haukur Baldvinsson    Auðsholtshjáleiga    Falur frá Þingeyrum

www.meistaradeild.is