Ragnar Snær vann ferðavinning frá VERDI ferðum

31. maí 2023
Fréttir
Ragnar Snær Viðarsson með vinninginn

Ragnar Snær Viðarsson vann ferðavinning frá VERDI ferðum að upphæð 200.000 í Happdrættinu á Allra sterkustu. Ragnar Snær segist ekki vera viss um hvort hann nýti vinninginn til að fara á HM eða á leik með Arsenal. Hvort sem hann velur vonum við að hann eigi gott ferðalag fram undan og óskum honum sem og öllum öðrum vinningshöfum til hamingju. Vinningana má nálgast á skrifstofu LH.