Ræktunarbú 2010

18. mars 2011
Fréttir
Á stóðhestaveislunni í Rangárhöllinni á Hellu laugardaginn 19.mars kl 13.00 verður frábært atriði frá ræktunarbúi ársins 2010. Þar munu þau sýna frábær hross úr sinni ræktun, þar sem fjöldi og gæði eru mikil á háttdæmdum stóðhestum og hryssum. Á stóðhestaveislunni í Rangárhöllinni á Hellu laugardaginn 19.mars kl 13.00 verður frábært atriði frá ræktunarbúi ársins 2010. Þar munu þau sýna frábær hross úr sinni ræktun, þar sem fjöldi og gæði eru mikil á háttdæmdum stóðhestum og hryssum.

Gaman verður að sjá hvaða stóðhesta þau munu koma með. Á sýningunni verða einnig frábærir afkvæmahestar, ásamt þekktum og óþekktum einstaklingshestum sýndir á sýningunni. Nú er um að gera að ná sér í miða, sem eru seldir  í forsölu í Fóðurblöndunni á Hvolsvelli, Klippisstofunni á Hellu, Baldvin og Þorvaldi á Selfossi, Líflandi í Reykjavík. Miðaverð er aðeins 2500 kr og frítt fyrir 12 ára og yngri.
 
Þeir afkvæmahestar sem fram koma á Stóðhestaveislu Rangárhallarinar laugardaginn 19.mars verða
Sær frá Bakkakoti
Þóroddur frá Þóroddstöðum
Hrymur frá Hofi
Sveinn-Hervar frá Þúfu
 
Einnig koma fram fjöldi einstaklingahesta bæði nýjar stjörnur í bland við þekkta háttdæmda hesta, þeir eru meðal annars
Héðinn frá Feti
Ágústínus frá Melaleiti
Þulur frá Hólum
Gljúfri frá Berg
Kolviður frá Strandarhöfði
Ísak frá Skíðbakka 1
Skuggi frá Hofi 1
Kórall frá Lækjarbotnum
Sæhylur frá Stóru-Hildisey
Bjarkar frá Tóftum
Fursti  frá Stórahofi
Gautrekur frá Torfastöðum
Hringur frá Skarði
Kjerúlf frá Kollaleiru
Njáll frá Friðheimum
Seifur frá Prestsbakka
Spói frá Hrólfsstaðahelli
Brestur frá Lýtingsstöðum
Fögnuður frá Vatnsenda
Þristur frá Þorlákshöfn

http://www.rangarhollin.net/