Peningaverðlaun á opnu Barkamóti

19. mars 2012
Fréttir
Nú styttist í hið geysivinsæla Barkamót, sem haldið verður í Reiðhöllinni í Víðidal, sunnudaginn 25. mars. Þátttaka á Barkamótinu er öllum opin og keppt er um veglegt verðlaunafé sem Barki ehf. gefur. Nú styttist í hið geysivinsæla Barkamót, sem haldið verður í Reiðhöllinni í Víðidal, sunnudaginn 25. mars. Þátttaka á Barkamótinu er öllum opin og keppt er um veglegt verðlaunafé sem Barki ehf. gefur.


Keppt er í tölti í þremur flokkum: 17 ára og yngri, áhugamannaflokki og opnum flokki. Leyfilegt er að skrá fleiri en einn hest til keppni, en komi knapi fleiri en einum hesti í úrslit skal hann velja einn til úrslitakeppni. Tveir keppendur eru inn á í einu og ríða eftir þul, hægt tölt, hraðabreytingar og yfirferð. ATH ekki snúið við í töltinu.

Skráning fer fram 
Miðvikudaginn 21. mars kl. 20:00 – 21:00 í Reiðhöllinni. Einnig hægt að skrá í síma 567-0100, 898-8445 gegn því að gefa upp kortanúmer fyrir skráningargjöldunum sem eru kr. 3.500 á skráningu en kr. 2.500 fyrir 17 ára og yngri.

Við skráningu þarf að:
1. gefa upp kennitölu knapa;
2. gefa upp IS númer hests;
3.  í hvaða flokk er skráð
4. greiða skráningargjaldið.
5.  upp á hvora hönd riðið er

Við lofum blíðskaparveðri og stemningu í Reiðhöllinni. Fjölmennum á Barkamót.

Með hestakveðju,
íþrótta- og mótanefnd Fáks