Páll Bragi ráðinn liðsstjóri NM2016

18. febrúar 2016
Fréttir
Landsliðsnefnd ásamt liðsstjóra NM2016

 

Í síðustu viku undirritaði Pjetur N. Pjetursson formaður landsliðsnefndar LH 2 ára samstarfssamning við Pál Braga Hólmarsson um að vera liðsstjóri íslenska landsliðsins á NM 2016 í Biri í Noregi 8. – 14. ágúst og á HM 2017. 

Spennandi og krefjandi störf bíða Páls Braga á næstu mánuðum og óskum við honum velfarnaðar í starfi.

Landsliðsnefnd LH