Páll Bragi liðstjóri NM2010

19. apríl 2010
Fréttir
Við undirritun samningsins. T.f.v. Bjarnleifur Bjarnleifsson formaður Landsliðsnefndar LH, Páll Bragi Hólmarsson nýráðin liðstjóri og Haraldur Þórarinsson formaður LH.
Páll Bragi Hólmarsson, hrossaræktandi og tamningamaður í Austurkoti, hefur verið ráðinn liðstjóri íslenska landsliðsins í hestaíþróttum fyrir Norðurlandamót. Norðurlandamótið verður haldið í YPÄJÄ í FINNLANDI dagana 4.-8.ágúst 2010. Nánari upplýsingar um mótið er að finna á heimasíðunni www.nc2010.fi   Páll Bragi Hólmarsson, hrossaræktandi og tamningamaður í Austurkoti, hefur verið ráðinn liðstjóri íslenska landsliðsins í hestaíþróttum fyrir Norðurlandamót. Norðurlandamótið verður haldið í YPÄJÄ í FINNLANDI dagana 4.-8.ágúst 2010. Nánari upplýsingar um mótið er að finna á heimasíðunni www.nc2010.fi   Páll Bragi er vel þekktur í hestaheiminum og margreyndur knapi. Hann hefur verið liðstjóri fyrir hönd annarrra þjóða áður, býr yfir mikilli reynslu og þekkir vel til í Finnlandi sem og víðar.

Landssamband hestamannafélaga óskar Páli Bragi innilega til hamingju með ráðninguna og óskar honum góðs gengis.

Umsóknarferli fyrir þá knapa sem hafa áhuga á að taka þátt á Norðurlandamóti verður auglýst næstu daga. Fylgist með á heimasíðu LH, www.lhhestar.is