Orðsending frá GDLH

20. febrúar 2013
Fréttir
Ágæti gæðingadómari. Eins og undanfarin ár hafa gæðingadómarar styrkt landslið Íslands í hestaíþróttum með því að gefa vinnu sína á „Svellköldum konum“ sem haldið verður 16.mars og „Þeim allra sterkustu“ sem haldið verður 6. apríl.

Þeir gæðingadómarar sem hafa áhuga á að dæma á þessum tveim stórviðburðum eru beðnir vinsamlegast að skrá sig hjá Oddrúnu gaedingadomarar@gmail.com fyrir 1.mars.

Stjórn GDLH mun síðan velja endanlegan hóp þegar umsækjendur liggja fyrir.

Kveðja

Stjórn GDLH