Opnir tímar í reiðhöllinni hjá Rikka

09. febrúar 2012
Fréttir
Eins og félagsmenn hafa eflaust tekið eftir þá er enn ekki risin reiðhöll á Kjóavallasvæðinu. Hestamannafélagið Gustur hefur því leigt aðstöðu í reiðskemmu Rikka að Hamraenda 16-18 alla fimmtudaga milli kl. 17.00 og 19.00. Eins og félagsmenn hafa eflaust tekið eftir þá er enn ekki risin reiðhöll á Kjóavallasvæðinu. Hestamannafélagið Gustur hefur því leigt aðstöðu í reiðskemmu Rikka að Hamraenda 16-18 alla fimmtudaga milli kl. 17.00 og 19.00.

Tímarnir eru opnir skuldlausum félagsmönnum og þeim að kosnaðarlausu. Reiðskemman getur borið 3-4 hross í einu. Hér er um algjört tilraunaverkefni að ræða sem verður að sjálfsögðu endurskoðað eftir þörfum.

Tímalengd á hvern reiðmann í reiðskemmunni fer svolítið eftir aðsókn og mun umsjónarmaður stýra umferð þar.

Hestamannafélagið Gustur