Opna Original áhugamannamótið

31. maí 2011
Fréttir
Aukin þátttaka áhugamanna í hestaíþróttum hefur orðið til þess að hestamannafélagið Fákur heldur opið íþróttamót áhugamanna 4.-5. júní 2011. Aukin þátttaka áhugamanna í hestaíþróttum hefur orðið til þess að hestamannafélagið Fákur heldur opið íþróttamót áhugamanna 4.-5. júní 2011. Boðið verður upp á þrjá styrkleikaflokka í tölti og fjórgangi þ.e. byrjendaflokk, minna vanir og meira vanir.  Einnig verður boðið upp á einn flokk í fimmgangi ef næg þátttaka fæst.

Fákur hvetur alla áhugamenn til þess að taka þátt og velja sér flokk við hæfi.  Mælt er með því að keppendur sem náð hafa þeim árangri að fá 6,4 eða hærra í forkeppni í tölti og 6,1 í fjórgangi skrái sig í meira vanir keppendur. Í byrjendaflokki í tölti verður einungis riðið hægt og yfirferðar tölt.

Aldurstakmark í þessa flokka er 22 ára.

Tekið verður við skráningum miðvikudaginn 1. júní milli kl. 18:00 og 20:00 í Reiðhöllinni og á sama tíma einnig í símum 567 0100 / 567 2166 / 820 1117. Við skráninguna þarf að hafa tiltækt nafn og kennitölu knapa, IS-númer, nafn og uppruna hests, í hvaða flokk á að skrá og kortanúmer fyrir skráningargjöldin.