Opin hugarflugsfundur um Landsmót

20. nóvember 2018
Fréttir

Kæru hestamenn,

Landsmót hestamanna 2020 verður haldið á Rangárbökkum á Hellu 6. - 12. júlí 2020. Undirbúningur fyrir mótið hófst snemma á þessu ári og hefur verkefnastjórn og stjórn Rangárbakka komið saman reglulega síðan í janúar. Mikil vinna hefur farið í undirbúning og áætlanagerð ásamt því að sótt var um styrk til mennta- og menningarmálaráðuneytis og á fleiri staði nú í október. 
 

Verkefnastjórn Landsmóts hestamanna 2020 stendur fyrir opnum hugarflugsfundi þriðjudaginn 20. nóvember kl. 20:00 á Stracta Hótel á Hellu og hvetur alla sem áhuga hafa á verkefninu að koma og með því leggja sitt af mörkum vegna undirbúnings Landsmóts á Hellu 2020.

 Gott væri ef þeir sem áhuga hafa á að koma skrái sig á fundinn á netfanginu rangarhollin@gmail.com eða í s: 8662632.

 Hlökkum til að sjá sem flesta, 

 Verkefnastjórn LM2020