Opið íþróttamót Snæfellings

02. júní 2009
Fréttir
Opið íþróttamót Hestamannafélagsins Snæfellings verður haldið á Kaldármelum sunnudaginn 14. júní og hefst kl. 10.00. Opið íþróttamót Hestamannafélagsins Snæfellings verður haldið á Kaldármelum sunnudaginn 14. júní og hefst kl. 10.00.


 

 

 

Keppt verður í fjórgangi, fimmgangi og tölti fullorðinna og fjórgangi og tölti barna, unglinga og ungmenna.  Einnig verður keppt gæðingaskeiði.

 

 

Skráningar skulu berast fyrir kl. 24.00 fimmtudaginn 11. júní á netfangið hrisdalur@hrisdalur.is.  Hver skráning kostar kr. 3.000 í fullorðinsflokki og ungmennaflokki, en kr. 1.000 í barna- og unglingaflokki. 

 

 

Hestar þurfa að vera grunnskráðir i World Feng. Skráningargjald  leggist inn á reikningsnúmer 0191-26-000876, kt. 440992-2189, fyrir föstudaginn 12. júní

 

 

Stjórn Snæfellings.