Opið íþróttamót Gusts

05. maí 2011
Fréttir
Íþróttamót Gusts sem er opið mót, mun fara fram í Glaðheimum í Kópavogi dagana 13- 15. maí næst komandi. Skráning fer fram dagana 5.-9. maí á vefnum www.gustarar.is undir liðnum skráning. Íþróttamót Gusts sem er opið mót, mun fara fram í Glaðheimum í Kópavogi dagana 13- 15. maí næst komandi. Skráning fer fram dagana 5.-9. maí á vefnum www.gustarar.is undir liðnum skráning.

Keppnisgreinar verða eftirfarandi:

Börn : Tölt, fjórgangur og fimi A
Unglingar: Tölt, fjórgangur, fimmgangur, gæðingaskeið og fimi A.
Ungmenni: Tölt, fjórgangur, fimmgangur, gæðingaskeið, slaktaumatölt og flugskeið.
Fullorðnir 2. flokkur: Tölt, fjórgangur, fimmgangur, gæðingaskeið, slaktaumatölt og flugskeið.
Fullorðnir 1. flokkur: Tölt, fjórgangur, fimmgangur, gæðingaskeið, slaktaumatölt og flugskeið.

Skráningagjöld eru:
Börn og unglingar: 2500 kr. hver skráning.
Aðrir: 3500 kr. hver skráning.
Ganga þarf frá greiðslu skráningargjalda með greiðslukorti við skráningu.

Mótanefnd Gusts