Opið haustmót Léttis

25. ágúst 2015

Opið haustmót Léttis verður haldið 5-6. september á Hlíðarholtsvelli.

Keppt verður í:

Tölt T1 - barna-, unglinga-, ungmenna-, 1 flokki og opnum flokki.
Tölt T2 (slaktaumatölt) – opinn flokkur
Fjórgangur V1 - barna-, unglinga-, ungmenna-, 1 flokki og opnum flokki.
Fimmgangur F1 –unglingaflokkur og  opinn flokkur
Gæðingaskeið og 100m skeið

Skráning er á http://skraning.sportfengur.com/Skraningkort.aspx?mode=add og er skráningargjaldið 3500 kr. fyrir hverja skráningu. Skráningu lýkur 1. september.

Nefndin áskilur sér rétt að fella niður greinar eða mótið í heild sinni ef ekki næst næg þátttaka.

Mótanefnd Léttis