Opið Gæðingamót Mána og Sparisjóðsins í Keflavík

02. júní 2009
Fréttir
Fyrirhugað er að halda Gæðingamótið fimmtudaginn 4.júní og föstudaginn 5.júní. Fyrirhugað er að halda Gæðingamótið fimmtudaginn 4.júní og föstudaginn 5.júní.

Keppt verður í :
Barnaflokki
Unglingaflokki
Ungmennaflokki

A-flokki áhugamanna ( riðið er tölt, brokk og skeið )
B-flokki áhugamanna ( riðið er hægt tölt, brokk og yfirferðartölt )
A-flokki
B-flokki

Ath keppendur í yngri flokkum mega skrá fleiri en einn hest. Aðeins í áhugamannaflokkunum verða fleiri en einn inn á vellinum í einu en annars sýnir hver sitt prógram.  Gefa þarf upp kennitölu knapa og IS tölu hests.
Skráningagjald er kr. 3000 á grein.
Nefndin áskilur sér rétt til að sameina A-og B-flokka ef ekki næst næg þátttaka.
Þeir sem voru búnir að skrá, vinsamlegast staðfestið skráninguna á e-mail:  thora@mitt.is  eða í síma 893-0304 fyrir þriðjudaginn 2.júní. Hægt er að skrá í þessu númeri og e-maili.  Keppendur sem voru búnir að skrá en komast ekki á þessum tíma verða að láta vita til að fá endurgreitt.

Ef ekki næst næg þátttaka á mótið verður það fellt niður.

Mótanefnd Mána.