Ólöglegur innflutningur á notuðum reiðtygjum

25. nóvember 2010
Fréttir
Notuð reiðtygi og óhreinn reiðfatnaður fundust í gær við tollskoðun á bíl sem var að koma erlendis frá með gámaflutningaskipi. Bíllinn sem er með íslenskt skráningarnúmer var einnig mjög óhreinn og var greinilega að koma beint úr umhverfi hesta. Notuð reiðtygi og óhreinn reiðfatnaður fundust í gær við tollskoðun á bíl sem var að koma erlendis frá með gámaflutningaskipi. Bíllinn sem er með íslenskt skráningarnúmer var einnig mjög óhreinn og var greinilega að koma beint úr umhverfi hesta.

Um er að ræða brot á lögum um dýrasjúkdóma og vörnum gegn þeim, þar sem skýrt er kveðið á um bann við slíkum innflutningi.
 
Matvælastofnun lítur málið mjög alvarlegum augum enda hefði innflutningurinn falið í sér mikla hættu á að nýr smitsjúkdómur bærist í íslenska hrossastofninn eða aðrar dýrategundir.
 

Furðu sætir að svo gróf tilraun sé gerð til að smygla notuðum reiðtygjum og óhreinum reiðfatnaði til landsins í ljósi þess að íslensk hrossarækt og hestamennskan öll hefur orðið fyrir miklum skakkaföllum vegna faraldurs smitandi hósta á þessu ári. Í tengslum við það áfall hefur verið hamrað á reglum um sjúkdómavarnir og hinar alvarlegu afleiðingar smitsjúkdóma í hrossum ættu að vera öllum hestamönnum kunnar.

Frétt tekin af http://www.mast.is/