Úrval kynbótahrossa á vorsýningum 2020 á WorldFeng

19. október 2020
Fréttir

Myndbönd af þeim 170 kynbótahrossum sem hefðu átt rétt til þátttöku í kynbótasýningu á Landsmóti 2020 eru komin inn á WorldFeng.

Á þessum fordæmalausu tímum og í miðju samkomubanni er tilvalið að stytta sér stundirnar með því að horfa á úrvals kynbótahross.

Hestamannafélögum býðst að kaupa aðgang að myndböndunum fyrir sína félagsmenn fyrir 350 kr. á ári fyrir hvern félagsmann 18-69 ára, en almennur aðgangur kostar annars 4.990 á ári fyrir hvern notanda. Tuttugu hestamannafélög hafa þegar keypt aðgang fyrir sína félagsmenn. Það eru félögin Adam, Borgfirðingur, Brimfaxi,  Dreyri, Freyfaxi, Funi, Geysir, Glaður, Grani,  Kópur,  Léttir,  Máni,  Neisti,  Sindri,  Skagfirðingur,  Sleipnir, Snæfellingur, Sóti, Sörli, Trausti ásamt Félagi hrossabænda.  

Er þitt félag komið með aðgang fyrir sína félagsmenn?

Nýjasta efnið sem komið er inn á WorldFeng er myndbönd af þeim 170 kynbótahrossum sem hefðu átt rétt til þátttöku í kynbótasýningu á Landsmóti í sumar en nýlega komu einnig inn kynbótahross frá LM 2006,  kynbótahross frá LM 2004, 2002 og 2000 ásamt stóðhestum og úrslitum í gæðingakeppninni og skeiði frá LM 2011.  Myndefni frá Landsmóti 2008 er svo væntanlegt á næstunni.

Mikil söguleg verðmæti liggja í myndböndum frá landsmótum liðinna ára, þarna er skrásett saga landsmóta og kynbótasaga íslenska hestsins. 

Þau félög sem hafa áhuga á að kaupa aðgang að myndefninu fyrir sína félagsmenn geta haft samband við skrifstofu LH á netfangið lh@lhhestar.is.