Nýr U21-landsliðshópur Íslands í hestaíþróttum

14. nóvember 2022
Fréttir
Nýr U21-landsliðshópur í hestaíþróttum Mynd Aron Valur Hinriksson

Nýr U21 landsliðshópur LH var tilkynntur í dag í verslun Líflands á Lynghálsi. Kynningunni var streymt á Facebook síðu LH en hægt er að sjá það HÉR

Það var létt yfir mannskapnum sem kom saman í höfuðstöðvum Landssambands Hestamannafélaga í Laugardalnum í morgun að skrifa undir samninga, fara yfir vetrarstarfið og undirbúa kynninguna og alveg greinilegt að spenna var í loftinu fyrir stórt tímabil framundan á HM ári.

Í Líflandi hóf Kristinn Skúlason formaður landsliðsnefndar kynninguna og svo tók Hekla Katharína Kristinsdóttir, þjálfari U21 landsliðsins við og kynnti hópinn. Hún lagði áherslu á að hann ætti það sameiginlegt að allir þessir knapar væru afreksfólk í sínum aldursflokki sem einnig búa yfir frábærum hestakosti sem þau bjóða fram sem valkost sem fulltrúar okkar á Heimsmeistaramótið.

Knaparnir eru aldrinum 16 – 21 árs og það eru þau sem hafa heimild að keppa á heimsmeistaramóti,og að þessu sinni voru 12 knapar valdir í hópinn í þessu fyrsta úrtaki. Í vetur mun landsliðsþjálfari ekki hika við að taka inn ný keppnispör sem sýna það að þau eigi heima í þessum hópi. „Hópurinn að þessu sinni er mótaður með markmið sumarsins í huga. Þar munum við mæta á heimsmeistarmót íslenska hestisns með fimm knapa og þessir fimm knapar þurfa að dekka fjórgangsgreinar, fimmgangsgreinar og skeiðgreinar. Ísland stefnir á framúrskarandi árangur á þessu móti. Það er ekkert minna,“ bætir hún við.

„Það er spennandi vetur framundan og veit ég að þau er nú þegar farin á fullt í undirbúning fyrir keppnistímabilið.“

 

Knaparnir eru: 

Arnar Máni Sigurjónsson, hestamannafélagið Fákur, stefnir m.a. með Storm frá Kambi í fimmgangsgreinar á HM.

Benedikt Ólafsson, hestamannafélagið Hörður, stefnir m.a. með Íslandsmeistarann Leiru-Björk í gæðingaskeið á HM.

Björg Ingólfsdóttir, hestamannafélagið Skagfirðingur, stefnir með Kjuða í fimmgangsgreinar á HM.

Glódís Rún Sigurðardóttir, hestamannafélagið Sleipnir, stefnir m.a. með Íslandsmeistarann Drumb frá Víði-Völlum fremri á HM.

Herdís Björg Jóhannsdóttir, hestamannafélagið Sprettur, stefnir m.a. með Íslandsmeistarann Kvarða frá Pulu á HM.

Jón Ársæll Bergmanna, hestamannafélagið Geysir, stefnir m.a. með Íslandsmeistarann Rikka frá Stóru-Gröf á HM.

Kristófer Darri Sigurðsson, hestamannafélagið Sprettur, stefnir m.a. með Ás frá Kirkjubæ í fimmgangsgreinar á HM.

Matthías Sigurðsson, hestamannafélagið Fákur, stefnir m.a. með Dýra frá Hrafnkelsstöðum í fjórgangsgreinar á HM.

Sara Dís Snorradóttir, hestamannafélagið Sörli, stefnir m.a. með Engil frá Ytri-Bægisá í fimmgangsgreinar á HM.

Signý Sól Snorradóttir, hestamannafélagið Máni, stefnir með Kolbein frá Horni í fjórgangsgreinar á HM.

Védís Huld Sigurðardóttir, hestamannafélagið Sleipnir, stefnir með Hrafnfaxa frá Skeggsstöðum í fjórgangsgreinar á HM.

Þórgunnur Þórarinsdóttir, hestamannafélagið Skagfirðingur, stefnir m.a. með Íslandsmeistarann Hnjúk frá Saurbæ í fjórgangsgreinar á HM.