Nýr landsliðsknapi í landsliðshópi LH

08. apríl 2019
Fréttir
Olil Amble og Sigurbjörn Bárðarson

Olil Amble hefur verið tekin inn í landsliðshóp Íslands í hestaíþróttum.

Olil á langan keppnisferil að baki og hefur margoft tekið þátt í heimsmeistaramótum og Norðurlandamótum auk þess að hafa hlotið nokkrum sinnum Íslandsmeistaratitla. Sigurbjörn Bárðarson landsliðsþjálfari Íslands í hestaíþróttum segir Olil vera mikinn styrk fyrir landsliðshópinn bæði sem einstaklingur og með þann hestakost sem hún býr yfir.

Olil er boðin velkomin í landsliðshóp LH.