Nýr framkvæmdarstjóri LM/LH

21. janúar 2011
Fréttir
Haraldur Örn Gunnarsson hefur verið ráðinn sem framkvæmdastjóra LM ehf.og LH.  Haraldur Örn Gunnarsson hefur verið ráðinn sem framkvæmdastjóra LM ehf.og LH. 

Haraldur var markaðstjóri við undirbúning fyrir LM 2010 og  hefur nú síðast starfað sem markaðs og verkefnastjóri hjá LH.  Hann hefur nú síðustu daga, ásamt fulltrúum hestamannafélaganna á stór Reykjavíkursvæðinu, Höfuðborgarstofu og Icelandair Group verið að vinna að “Vetrarhátíð íslenska hestsins” sem er nýtt og spennandi verkefni til kynningar á hestinum og öllu því þróttmikla starfi sem í kringum hann er. Haraldur er með embættispróf í guðfræði og er einnig með próf í upplýsingarstjórnun frá CBS viðskiptaháskólanum í Kaupmannahöfn. Bjóðum við Harald velkominn til starfa fyrir okkur hestamenn.