Nýdómara/landsdómarapróf / upprifjun gæðingadómara

08. apríl 2011
Fréttir
Ákveðið hefur verið að halda nýdómara og landsdómaranámskeið í Gæðingadómum ef næg þáttaka fæst lágmark 14 manns þurfa að skrá sig á námskeiðið. Ákveðið hefur verið að halda nýdómara og landsdómaranámskeið í Gæðingadómum ef næg þáttaka fæst lágmark 14 manns þurfa að skrá sig á námskeiðið.

Einnig verður boðið uppá upprifjunarnámskeið þessa sömu daga. Námskeiðið verður  haldið í Reykjavík 29.apríl nk. og hefst kl 14.00 og stendur fram á sunnudaginn 1.maí. Námskeiðinu lýkur með prófi eftir hádegi. Kennt verður í húsakynnum ÍSÍ og  á svæðum hestamannafélaganna á stórhöfuðborgarsvæðinu.

Mikilvægt er að skrá sig til leiks ekki seinna en miðvikud. 20.apríl og staðfesta þátttöku með staðfestingagjaldi kr 25.000. Verð námskeiðs og gagna er kr 58.000 fyrir nýdómaranámskeið og kr 38.000 fyrir Landsdómaranámskeið. Gögn verða send  til viðkomandi um leið og skráningarfrest líkur. Nauðsynlegt er  að fólk sé mjög vel undirbúið þegar námskeið hefst og er þar átt við lög og reglur LH/Gæðingakeppni og leiðara.

Flest hestamannafélög styrkja sitt fólk til þátttöku og hvetjum við áhugasama til að kynna sér málið og vera í sambandi ef frekari upplýsinga er óskað.

Skráning á námskeiðið og fyrispurnir skal senda á gaedingadomarar@gmail.com