Nýárstölt Léttis - úrslit

20. janúar 2014
Fréttir
Nú er nýloknu frábæru nýárstölti hjá Léttismönnum. Mótið gekk hratt og vel og alveg er það á hreinu að ef þetta er það sem koma skal verður mikil gleði hjá Léttisfólki í vetur. Hrossin voru góð og knaparnir kátir, áhorfendur skemmtu sér einnig konunglega. Mótið var til styrktar Takti styrktarfélagi, þess má geta að 111,000 krónur söfnuðust og verða afhent sjóðnum á næstu dögum.

Nú er nýloknu frábæru nýárstölti hjá Léttismönnum. Mótið gekk hratt og vel og alveg er það á hreinu að ef þetta er það sem koma skal verður mikil gleði hjá Léttisfólki í vetur. Hrossin voru góð og knaparnir kátir, áhorfendur skemmtu sér einnig konunglega.
Mótið var til styrktar Takti styrktarfélagi, þess má geta að 111,000 krónur söfnuðust og verða afhent sjóðnum á næstu dögum.

Allir starfsmenn mótsins gáfu sína vinnu og Verðlaunagripir Norðurlands styrktu Létti um verðlaunin.
Málefnið er frábært og hvetjum við fleiri félög til að halda svona mót.

Hér eru úrslit kvöldsins:

B styrkleikaflokkur
Sylvía Sól Guðmundsdóttir Skorri frá Skriðulandi 6,61
Sigurjón Örn Björnsson Kostur frá Ytra Vallholti 6,50
Þóra Höskuldsdóttir Sólfaxi frá Sámsstöðum 6,28
Jasper Snoder Hrókur frá Efri Rauðalæk 5,89
Egill Már Þórsson Ársól frá Strandarhöfði 5,83

A styrkleikaflokkur
Líney María Hjálmarsdóttir Sprunga frá Bringu 7,50
Guðmundur Karl Tryggvason Ás frá Skriðulandi 7,39
Sæmundur Sæmundsson Lyfting frá Fyrir-Barði 6,94
Guðröður Ágústsson Hnöttur frá Valþjófsstað 6,89
Úlfhildur Sigurðardóttir Sveifla frá Hóli 6,83