Nýárstölt Háhólshesta og Léttis

26. janúar 2011
Fréttir
Nýárstölt Háhólshesta og Léttis, verður haldið föstudaginn 28. janúar kl.20:00. Skráning er á lettir@lettir.is  með upplýsingum um nafn og kt. knapa, nafn og IS númer hests. Nýárstölt Háhólshesta og Léttis, verður haldið föstudaginn 28. janúar kl.20:00. Skráning er á lettir@lettir.is  með upplýsingum um nafn og kt. knapa, nafn og IS númer hests.

Keppt er í 2 flokkum, meira vanir og minna vanir og taka þarf fram við skráningu í hvorum flokknum skal keppt í.

Án þessara upplýsinga er skráningin ógild.

Ráslisti birtist á föstudagsmorgun.

Skráningargjald er 1,500 kr. fyrir hvern hest og greiðist inná 0302 - 26 - 15839, kennitala 430269-6749. Nauðsynlegt er að skrá fyrir hvern er greitt.

Skráningu lýkur á miðnætti fimmtudaginn 27. janúar kl. 24:00

Reiðhallarnefnd.