Norðurljósasýning Fáks

10. apríl 2015
Fréttir

Norðurljósasýning Fáks verður haldin 18. apríl. Húsið opnar kl 19:30. 

Glæsilegir hestar verða sýndir af færustu knöpum landsins.
Heiðursknapinn verður Árni Björn Pálsson sem varla þarf að kynna en á árinu 2014 varð hann Íslandsmeistari, Landsmótssigurvegari og sigraði Meistaradeildina. Frábær skemmtiatriði verða í boði, að sjálfsögðu.

Norðurljósa-barinn mun opna tímanlega fyrir sýninguna eða kl. 19:30 í TM-reiðhöllinni og eftir sýninguna verður Norðurljósa-kvöld í félagsheimili Fáks að lokinni sýningu.

Hin einu sönnu, Hafliði Halldórsson, Sigurbjörn Viktorsson og Ragnhildur Haraldsdóttir eru sýningarstjórar, og Drífa Daníelsdóttir mun sjá um að skreyta og þema.

Húsið opnar kl. 19:30. Boðið verður upp á léttar og mjög ódýrar veitingar og fleira spennandi.

Viltu tryggja þér miða í forsölu?
Skráning hér: http://goo.gl/forms/xO3Tqv90Zu

Miðar í forsölu 2.500 kr. Sækja þarf miðana 16 og 17 apríl í TM- reiðhöllina milil 18 og 20:00
Miðar við inngang 2.900 kr.

Sjáumt kát !