Norðurlandamót í hestaíþróttum í Ypäjä í Finnlandi 4. – 8. ágúst.

21. apríl 2010
Fréttir
Sigurður Matthíasson og Kjarni frá Auðsholtshjáleigu á HM2009. Mynd: MG
Norðurlandmót í hestaíþróttum verður haldið dagana 4. – 8. ágúst í Ypäjä í Finnlandi. Í Ypäjä eru aðstæður góðar og keppnisvæðið mjög skemmtilegt. Páll Bragi Hólmarsson verður liðsstjóri landsliðsins og sér hann einnig alfarið um að velja keppendur í landsliðshópinn. Norðurlandmót í hestaíþróttum verður haldið dagana 4. – 8. ágúst í Ypäjä í Finnlandi. Í Ypäjä eru aðstæður góðar og keppnisvæðið mjög skemmtilegt. Páll Bragi Hólmarsson verður liðsstjóri landsliðsins og sér hann einnig alfarið um að velja keppendur í landsliðshópinn. Keppt verður í öllum hefðbundnum greinum hestaíþrótta í tveimur aldurflokkum:
-    15 - 21 árs (21. árs á árinu) - Unglingar og Ungmenni
-    22 ára og eldri - Fullorðnir

Þeir sem hafa áhuga á að keppa fyrir Íslands hönd á mótinu eru vinsamlegast beðnir um að senda inn umsókn.
Í umsókninni þarf að koma fram: Nafn, heimilisfang, sími, aldur og netfang. Einnig þarf að koma fram keppnisreynsla og telja upp helstu afrek á keppnisvellinum.

Knapar útvega sér hross fyrir mótið sjálfir, í samráði við liðstjóra, en hægt er að aðstoða ungmenni ef þess gerist þörf.

Við hvetjum sem flesta til að sækja um en reynsla af þátttöku á Norðurlandamóti er frábært veganesti fyrir alla hestaíþróttamenn og konur.

Umsóknum þarf að skila inn til Landssambands hestamannafélaga í síðasta lagi 21.maí.
Bréflega: Landssamband hestamannafélaga, Engjavegur 6, 104 Reykjavík.
Tölvupóstur: lh@isi.is
Fax: 514 4031.

Allar upplýsingar um mótið er hægt að fá á skrifstofu LH í síma 514 4030 og hjá Páli Braga í síma 895-4241.

Bestu kveðjur,
Landsliðsnefnd LH