Norðlenska hestaveislan

12. febrúar 2015
Fréttir

Dagana 17-19. apríl mun Norðlenska hestaveislan fara fram í Léttishöllinni á Akureyri. 

Veislan byrjar á föstudagskvöld með stórsýningunni Fákar og Fjör. Á laugardagsmorgni verður sýnikennsla, farið í heimsóknir á ræktunarbú í nágreninu, dýrindis kvöldverður í Skeifunni og lýkur svo veislunni á hinni einu og sönnu Stóðhestaveislu.

Nánari upplýsingar verða sendar þegar nær dregur.

Hestamenn takið helgina frá.

Viðburðarnefnd Léttis.