NM2016 – umsóknir

17. febrúar 2016
Fréttir

 

Norðurlandamótið í hestaíþróttum verður haldið í Biri í Noregi dagana 8.-14. ágúst 2016. Þeir sem hafa áhuga á að keppa fyrir Íslands hönd á mótinu í sumar geta sent umsóknir á lh@lhhestar.is

Ungmenni sem hafa áhuga þurfa að hafa keppt að lágmarki eitt mót á þeim hesti sem þeir hyggjast keppa á. Inni á vef LH undir „Landslið“ er að finna umsóknareyðublað sem hægt er að fylla inn  í og senda inn.

Umsóknarfrestur er 1. maí nk. 

Smellið hér til að fá nánari upplýsingar um mótið.