Námskeið vegna Kappa

21. apríl 2010
Fréttir
Þann 13. apríl síðastliðinn kom út ný útgáfa af Kappa og GagnaKappa, sem hægt er að nálgast á heimasíðu LH, www.lhhestar.is. Frá þeim degi var eldri útgáfa Kappa ónothæf og því er mikilvægt að allir notendur uppfæri hugbúnaðinn. Á næstu dögum og vikum verður Tölvunefnd LH með námskeið um notkun á Kappa. Mælt er eindregið með því að hvert félag sendi sinn fulltrúa á námskeiðið. Þann 13. apríl síðastliðinn kom út ný útgáfa af Kappa og GagnaKappa, sem hægt er að nálgast á heimasíðu LH, www.lhhestar.is. Frá þeim degi var eldri útgáfa Kappa ónothæf og því er mikilvægt að allir notendur uppfæri hugbúnaðinn. Á næstu dögum og vikum verður Tölvunefnd LH með námskeið um notkun á Kappa. Mælt er eindregið með því að hvert félag sendi sinn fulltrúa á námskeiðið. Námskeiðin verða haldin sem hér segir:

Selfoss 29.apríl kl.20:00 Félagsheimili Sleipnis
Reykjavík 3.maí kl.17:00 Íþróttamiðstöðinni í Laugardal
Borgarnes 4.maí kl.20:00 Félagsheimili Skugga
Akureyri 5.maí kl.16:30 Hafnarstræti 93-95
Sauðárkrókur 6.maí kl.20:00 Reiðhöll Sauðárkróks

Vonumst til þess að sjá sem flesta,
Tölvunefnd LH.