Námskeið ungra þátttakenda í Ólympíu

10. febrúar 2014
Fréttir
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands auglýsir eftir tveimur þátttakendum, konu og karli, á námskeið ungs íþróttafólks (20 til 35 ára) á vegum alþjóða Ólympíuakademíunnar í Ólympíu í Grikklandi dagana 15. til 29. júní n.k. Að þessu sinni er umfjöllunarefnið ólympísk gildi (Olympic Values) og sérstök áhersla er lögð á virðingu fyrir fjölbreytileikanum.

Flugferðir og uppihald eru þátttakendum að kostnaðarlausu.
Leitað er eftir einstaklingum sem náð hafa mjög góðum árangri í íþróttagrein (-greinum) og/eða sinnt kennslu/þjálfun/félagsstörfum innan íþróttahreyfingarinnar, ásamt því að sýna málefnum ólympíuhreyfingarinnar sérstakan áhuga. Þeir skulu hafa gott vald á ensku og/eða frönsku og vera fyrirmynd annars æskufólks í hvívetna.

Umsóknum skal skilað, á þar til gerðum eyðublöðum til skrifstofu ÍSÍ, Íþróttamiðstöðinni í Laugardal, ekki seinna en föstudaginn 1. mars n.k. Hægt er að nálgast umsóknareyðublöðin á heimasíðu ÍSÍ.

Umsókn skal skilað á ensku og skulu fylgja henni tvær passamyndir.

Frekari upplýsingar veitir Ragnhildur Skúladóttir sviðsstjóri þróunar- og fræðslusviðs ÍSÍ sími 514 4000, ragnhildur@isi.is

Einnig má benda á heimasíður IOA www.ioa-sessions.org/ , og www.ioa.org.gr