Námskeið í frumtamningum

09.08.2011
Hestamannafélagið Fákur og Róbert Petersen reiðkennari verða með frumtamningarnámskeið sem hefst í Reiðhöllinni í Víðidal í lok ágúst. Hestamannafélagið Fákur og Róbert Petersen reiðkennari verða með frumtamningarnámskeið sem hefst í Reiðhöllinni í Víðidal í lok ágúst.
Hver þátttakandi kemur með sitt trippi og farið verður í gegnum helstu þætti frumtamningar, s.s.:

  •          Atferli hestsins
  •          Leiðtogahlutverk
  •          Fortamning á trippi
  •          Undirbúningur fyrir frumtamning
  •          Frumtamning
Bóklegir tímar:  2
Verklegir tímar:  12

Tímar: Mánudagskvöld, þriðjudagskvöld og fimmtudagskvöld í fjórar vikur.

Verð: 30.000.-

Fjórir verða í hverjum hópi en hámarksfjöldi á námskeiðið er 12 - 16 þátttakendur. Bóklegir tímar verða sameiginlegir fyrir allan hópinn. Verkleg kennsla verður í Reiðhöllinni þar sem unnið verður með trippin (ca. 15 mín. á hvert trippi).  Einnig eiga nemendur að fylgjast með öðrum og læra þannig á mismunandi hestgerðir og mismunandi aðferðir við for- og frumtamningu.

Skráning á netfangið fakur@fakur.is  - lokaskráningarfrestur er miðvikudaginn 24. ágúst.

Fáksfélagar ganga fyrir en námskeiðið er öllum opið.