Námskeið á vegum ÍSÍ

06. maí 2016

 

ÍSÍ býður upp á námskeið fyrir fararstjóra í íþróttaferðum í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal, miðvikudaginn 11. maí. Þátttaka er öllum heimil án endurgjalds á meðan húsrúm leyfir en námskeiðið mun fara fram á þriðjuhæð Íþróttamiðstöðvarinnar í E - sal, kl. 17:00-19:00. Gústaf Adólf Hjaltason verður fyrirlesari á námskeiðinu en hann hefur margra ára reynslu úr íþróttastarfinu og sat meðal annars í framkvæmdarstjórn ÍSÍ.
Farið verður yfir þá fjölmörgu þætti sem hafa þarf í huga varðandi hlutverk fararstjóra í keppnis- og æfingaferðum á vegum íþróttahreyfingarinnar, bæði innanlands og erlendis.

Þessi námskeið hafa verið mjög vinsæl og því um að gera að skrá sig í tíma. Allir þátttakendur fá skjal frá ÍSÍ með staðfestingu á þátttöku að námskeiðinu loknu.

 

hérna er tengill á viðburðinn á facebook:

https://www.facebook.com/events/470440143156081/