Námskeið á vegum HÍDÍ

09. janúar 2013
Fréttir
Stjórn og fræðslunefnd HÍDÍ hafa ákveðið að upprifjunarnámskeið verður annars vegar haldið miðvikudaginn 13.febrúar kl.17:00-22:00 í Reykjavík

Stjórn og fræðslunefnd HÍDÍ hafa ákveðið að upprifjunarnámskeið verður annars vegar haldið miðvikudaginn 13.febrúar kl.17:00-22:00 í Reykjavík (nánari staðsetning auglýst síðar) og hins vegar sunnudaginn 3.mars kl.10:00-15:00 á Sauðárkróki.

 

Einnig hefur verið ákveðið að halda nýdómaranámskeið í vor ef næg þátttaka næst - lágmark 15 manns.

Fyrri hluti námskeiðsins (bóklegt) yrði á sumardaginn fyrsta þann 25.apríl og skriflegt/munnlegt próf daginn eftir þann 26.apríl.

Seinni hluti námskeiðsins (verklegt+próf) yrði þá helgina 1.-.5.maí í tengslum við Reykjavíkurmótið í Víðidal.

 

 

Nánari upplýsingar um dagskrá og skráningu auglýst síðar - einnig er hægt að fylgjast með á vefsíðu félagsins www.hidi.is