Miðasalan hafin á Allra sterkustu!

31. mars 2015
Fréttir

 

Miðsalan hófst með látum í gær og ljóst er að mikil spenna er fyrir laugardagskvöldinu í Sprettshöllinni, Kópavogi. Miðar fást í Líflandi Lynghálsi, Top Reiter Ögurhvarfi og í verslun Baldvins og Þorvaldar á Selfossi. Miðinn kostar kr. 3.500.

Viðburðurinn verður núna á laugardaginn, 4. apríl í Sprettshöllinni. Húsið opnar kl. 18:30.

Tilboð í miðasölu eru þessi:

  • 1 aðgöngumiði + 1 happdrættismiði = 4.000 kr.
  • 6 happdrættismiðar = 4.000 kr.

Happdrættisvinningarnir eru glæsilegir og þakkar landsliðsnefnd þeim er leggja til vinningana kærlega fyrir veglega þátttöku í verkefnum landsliðsins.

  1. Vinningur - Ölnir  frá Akranesi Gefandi Margrétarhof. Sigurvegari í 5 vetra flokki á landsmóti 2014.
  2. Vinningur - Eldur frá Torfunesi. Gefandi Anna Fjóla Gísladóttir. Aðaleinkunn 8.60 þriðja sæti í 5 vetra flokki á landmóti 2012.
  3. Vinningur - Stormur frá Herríðarhóli.  Gefandi Ólafur Arnar Jónsson. Sigurvegari í tölti á landsmóti 2014,  íslandsmeistari í tölti.
  4. Vinningur - Topreiter hnakkur.  Gefandi Topreiter.
  5. Vinningur - ferðavinningur.  Gefandi Úrval útsýn

Einnig viljum við minna á Stóðhestaveltuna. Lang stærsta stóðhestavelta sem haldin hefur verið á folatollum – allir hagnast!   100 folatollar undir heiðursverðlauna, fyrstu verðlauna og stórefnilega unghesta verða í pottinum.  ENGIN NÚLL – aðeins KR. 25.000 hver tollur.

Rétt er að benda á að vert er að tryggja sér miða hið fyrsta þar sem oftar en ekki hefur selst upp á þennan magnaða viðburð!

Sjáumst í Sprettshöllinni næstkomandi laugardag!

Landsliðsnefnd LH