Miðasala hafin á Ístölt

28. mars 2010
Fréttir
Forsala aðgöngumiða á Ístölt "Þeirra allra sterkustu" er hafin í verslun Líflands á Lynghálsi og verslun Baldvins og Þorvaldar á Selfossi. Forsala aðgöngumiða á Ístölt "Þeirra allra sterkustu" er hafin í verslun Líflands á Lynghálsi og verslun Baldvins og Þorvaldar á Selfossi. Aðgöngumiðinn kostar einungis 3.000 kr. sem er sama verð og áður. Gríðarlega sterkir hestar og knapar mæta til leiks, nánar kynntir síðar. Sýning sem enginn má láta framhjá sér fara.

Einnig eru til sölu happdrættismiðar en í verðlaun er folatollur undir engan annan en Álf frá Selfossi. Gefandi tollsins er Christina Lund.

Allur ágóði af Ístölti "Þeirra allra sterkustu" rennur til íslenska landsliðsins í hestaíþróttum. Styrkjum landsliðið okkar. Áfram Ísland!