Meistaramót Andvara

08. ágúst 2012
Fréttir
Þá fer að styttast í eitt skemmtilegasta mót ársins Meistaramót Andvara 2012, einnig þekkt sem Metamót vegna fjölda meta sem eru ávallt slegin á mótinu. Mótið fer fram dagana 31. ágúst – 2. september.

Þá fer að styttast í eitt skemmtilegasta mót ársins Meistaramót Andvara 2012, einnig þekkt sem Metamót vegna fjölda meta sem eru ávallt slegin á mótinu. Mótið fer fram dagana 31. ágúst – 2. september.

Metamótið er einstakt því þar er „allt leyfilegt“ og á það ekki einungis við útbúnað í gæðingakeppni, heldur einnig allt fyrirkomulag mótsins. Þó eru skeið og töltkeppni lögleg og með hefðbundnu sniði.

Eftirfarandi breytingar eru á fyrirkomulagi mótsins í ár:

  • Einungis verður í boði opinn flokkur í öllum greinum. Áhugamenn eru þó eindregið hvattir til að láta það ekki draga úr sér að taka þátt, enda ekki á hverjum degi sem menn fá tækifæri til að etja kappi við meistarana.
  • Sú nýbreytni verður höfð í ár, að í A og B flokki verða auk hefðbundinna A og B úrslita, einnig riðin C úrslit.
  • Sem fyrr verða auk þess sæti í A-úrslitum í A og B flokki seld á uppboði  á skemmtikvöldinu.
  • Aldurstakmark í öllum greinum er 18 ára (á árinu).
  • Hápunktur Metamótsins er hið margrómaða 100 metra skeið í flóðlýsingu sem hefst kl. 22 á laugardagskvöldinu – engar breytingar á því.
  • Sem fyrr verða peningaverðlaun veitt í efstu sætum í öllum skeiðgreinum.
  • Ný keppnisgrein á dagskrá er „Rökkurbrokk“ sem verður haldin til skemmtunar og upphitunar fyrir ljósaskeiðið í rökkrinu milli kl. 20 og 22, en þá er keppt í fljúgandi 100 m kappreiðabrokki með tímatöku – við reiknum með Íslandsmeti !
  • Forstjóratöltið verður auðvitað á sínum stað, nema í ár verður riðið á beinni braut og sýnt hægt tölt og fegurðartölt. Áhugasamir tilkynni þátttöku: valdi@inter.is              

 

Keppnisgreinar:

-          A flokkur (á beinni braut) – opinn flokkur

-          B flokkur (á beinni braut) – opinn flokkur

-          Tölt T3 (hringvöllur) – opinn flokkur

-          Skeið: 150 m

-          Skeið: 250 m

-          Skeið: 100 m ljósaskeið

-          Rökkurbrokk NÝTT

Skráningargjald er 4.500 kr í öllum greinum, en 3.000 kr í Rökkurbrokki.  Skráning í alla flokka fer fram á www.skraning.is. Ekki verður tekið við skráningum í síma. Lokað verður fyrir skráningu þriðjudaginn 28. ágúst kl. 22. Endanleg dagskrá verður kynnt eftir að skráningu lýkur. Upplýsingar á www.andvari.is.